Hringur úr 2 krónum

Hringur úr 2 krónum

1958 / 63
9.900 kr
Skip to product information
Hringur úr 2 krónum

Hringur úr 2 krónum

9.900 kr
Ártöl
Hringastærð

Handsmíðaður hringur úr gömlum íslenskum 2 krónum.

Hringurinn er gulllitaður en málmblandan í myntinni og þar með hringnum er 79% kopar, 20% sink og 1% nikkel.

Inn í hringnum er ártalið frá því myntin var slegin, hægt er að velja á milli 4 mismunandi ártala.

Hringurinn er 0,7 cm breiður og kemur í nokkrum hringastærðum. Ef að hringastærð viðkomandi er óvituð þá er hægt að máta og versla hringana í Herraffataverslun Kormáks & Skjaldar á Laugaveginum, þar eru samt ekki öll ártöl til á lager.

Ef einhver hringastærð eða ártal er ekki til á lager hérna eða hjá Kormáki & Skyldi, þá er hægt að sérpanta hringinn á sama verði með því að senda okkur línu á afiogeg@gmail.com, afhendingartíminn gæti verið lengri.

Hérna eru nokkur atriði sem er gott að vita varðandi hringinn:

  • 1% af hringnum er úr nikkel, svo að hann hentar ekki þeim sem eru með nikkel ofnæmi.
  • Hringurinn getur gefið frá sér lit á fingurinn sem er spanskgræna. Til að minnka það kemur hringurinn lakkaður að innan með glæru naglalakki, hægt er að bæta á naglalakkið sjálf/ur.
  • Eins og með aðra skartgripi sem eru ekki úr gulli þá fellur á hringinn, en með hverjum skartgrip frá okkur fylgir blár silfurklútur sem er hægt að nota til að pússa upp hringinn og halda honum gljáandi.
  • Einnig er hægt að kaupa efni sem heitir Brasso til að bera á hringinn og gera hann gljáandi. Brasso fæst í flestum verslunum og hjá okkur.
  • Einnig mælum við með því að fara ekki með hringinn í vatn og taka hann af fyrir svefn til að halda hringnum gljáandi og minnka litinn sem getur komið á fingurinn.

You may also like