Um okkur
Afi & Ég
Afi & Ég handsmíðum skartgripi úr gamalli íslenskri mynt sem var notuð fyrir árið 1981. Afi & Ég er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 2017, fyrirtækið samanstendur af afa nokkrum, Gunnari Th. Gunnarssyni og barnabarni hans Árna Veigari Thorarensen, ljósmyndin að ofan er frá árinu 2000. Hugmyndin að skartgripunum fæddist árið 2017 þegar að afi fann poka af gamalli mynt sem hann hafði safnað frá tímum myntbreytingarinnar 1981 og alltaf ætlað sér að gera eitthvað úr myntinni. Því næst fórum við á silfursmíðanámskeið til að læra grunninn í skartgripagerð. Síðan hófumst við handa við að prufa okkur áfram og gerðum mörg mistök sem að við lærðum af. Við höfum átt margar góðar stundir við að smíða skartgripina saman og erum sífellt að prufa okkur áfram og smíða nýja skartgripi.
Myntin
Afi & Ég smíðum skartgripi úr gömlu íslensku myntinni sem var notuð á árunum 1944 til 1981. Árið 1944 varð Ísland lýðveldi og því var búin til ný íslensk mynt í framhaldi af því, Árið 1981 var svo gerð önnur myntbreyting þar sem felld voru brott tvö núll af verðgildi krónunnar, þannig að 100 gamlar krónur urðu að 1 nýrri krónu, og núverandi mynt tekin upp. Ástæðan fyrir myntbreytingunni árið 1981 var verðbólgan, svo dæmi sé tekið þá var hægt að kaupa miða í bíó fyrir gamlar 2 krónur árið 1965. Einnig smíðum við nokkra skartgripi úr eldri íslenskri mynt sem var notuð á árunum 1918 til 1944, þá voru í gildi eldri íslenskar krónur merktar Kristjáni 10. Danakonung.
Hafa Samband
Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum afiogeg@gmail.com eða með því að senda okkur skilaboð á Facebook.
Póstsendingar
Afi & Ég sendum skartgripina um allt land með póstinum í næsta póstbox.
Sértpantanir
Ef að tiltekinn skartgripur með sértöku ártali er ekki til á lager hjá okkur, þá er hægt að sértpanta skartgripinn á sama verði með því að senda okkur línu á afiogeg@gmail.com
Skipt & Skilað
Hægt er að hafa samband í gegnum afioeg@gmail.com til að skipta eða skila skartgripum.