Skip to product information
Ermahnappar úr 5 aurum - Konungsmynt
8.900 kr
Ermahnappar smíðaðir úr gömlum íslenskum 5 aurum.
Ermahnapparnir skarta kórónu og skammstöfun Kristjáns 10. konungs Danmerkur og konungsríkisins Íslands á þeim tíma sem myntin var slegin. Á ermahnöppunum sést einnig ártalið frá því myntin var slegin, hægt er að velja á milli nokkra mismunandi ártala.
Ermahnapparnir eru koparlitaðir, málmblandan í myntinni er 95-97% kopar og rest er blanda af tin og sink, hlutfallið fer eftir ártali.
Þvermálið á ermahnöppunum er 2,1 cm. Á síðustu myndinni má sjá samanburð á stærðunum á þeim ermahnöppum sem eru smíðaðir úr kopar konungsmyntinni, 5 aurinn er lengst til hægri, 2 aurinn í miðjunni og 1 eyringurinn til vinstri.