Skip to product information
Ermahnappar úr 1 aur - Konungsmynt
7.900 kr
Ermahnappar smíðaðir úr gömlum íslenskum 1 aur.
Ermahnapparnir skarta kórónu og skammstöfun Kristjáns 10. konungs Danmerkur og konungsríkisins Íslands á þeim tíma sem myntin var slegin. Á ermahnöppunum sést einnig ártalið frá því myntin var slegin, hægt er að velja á milli nokkra mismunandi ártala.
Ermahnapparnir eru koparlitaðir, málmblandan í myntinni er 95% kopar og rest er blanda af tin og sink, hlutfallið fer eftir ártali.
Þvermálið á ermahnöppunum er 1,3 cm. Á síðustu myndinni má sjá samanburð á stærðunum á þeim ermahnöppum sem eru smíðaðir úr kopar konungsmyntinni, 1 aurinn er lengst til vinstri.